Efnisgerð & umsjón samfélagsmiðla
Þjónustan okkar
Við hjálpum fyrirtækjum að byggja upp og halda úti öflugum samfélagsmiðlum með skapandi efni sem endurspeglar þeirra ímynd. Hvort sem þig vantar stakt myndband, tilbúið efni eða aðstoð við allt ferlið finnum við lausn sem hentar þínu fyrirtæki.
Þjónustuleiðir
-
Fyrir fyrirtæki sem vantar ákveðið efni fyrir samfélagsmiðlana sína.
Við sjáum um hugmyndavinnu, upptökur, myndatöku og vinnslu og afhendum fullbúið efni tilbúið til birtingar.
Hentar vel ef: þig vantar stakt myndband, myndafærslu eða annað efni án þess að skuldbinda þig til reglulegrar þjónustu.
-
Fyrir fyrirtæki sem vilja láta okkur sjá um samfélagsmiðlana frá A–Ö.
Við sjáum um hugmyndavinnu, efnisáætlun, efnisgerð, textagerð, skipulag og birtingar. Við fylgjumst einnig með niðurstöðum og nýtum þær til að þróa efnið og áherslurnar áfram.
Hentar vel ef: þið viljið halda samfélagsmiðlunum virkum og markvissum án þess að þurfa sjálf að sjá um skipulag, efnisgerð og birtingar.
-
Fyrir fyrirtæki sem vilja eiga tilbúið efni til að birta yfir ákveðið tímabil.
Við skipuleggjum efnisgerðina, tökum upp og vinnum myndir og myndbönd og afhendum tilbúinn efnisbanka sem þið getið nýtt á samfélagsmiðlunum þegar ykkur hentar.
Hentar vel ef: þið viljið halda samfélagsmiðlunum virkum en sjá sjálf um birtingarnar.
-
Fyrir fyrirtæki sem vilja sjá sjálf um efnisgerðina en vantar hugmyndir og skýra stefnu.
Við útbúum hugmyndir að efni fyrir samfélagsmiðla ásamt tillögum að textum, uppsetningu og útfærslu. Þannig hafið þið skýran grunn til að vinna út frá.
Hentar vel ef: þið viljið sjá sjálf um myndatökur og birtingar en fá aðstoð við að finna réttu hugmyndirnar.
Finnum hvað hentar þínu fyrirtæki
Hafðu samband við okkur og við finnum saman þá þjónustu sem hentar ykkar þörfum
Um okkur
BT Media er skapandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í efnisgerð og umsjón samfélagsmiðla fyrir fyrirtæki. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, gott samstarf og efni sem er sniðið að hverju fyrirtæki.
Á bak við BT Media stöndum við Brigitta og Þórhildur. Við sameinum þekkingu á markaðsmálum og viðskiptafræði við skapandi hugsun og reynslu af efnisgerð.
Þórhildur lýkur B.S. í viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál í desember og er einnig með diplómu í sölu-, markaðs- og rekstrarnámi. Brigitta hefur lokið tveimur árum í sama B.S.-námi og hefur reynslu af efnisgerð og uppbyggingu samfélagsmiðla.
Við trúum því að gott efni byrji á því að kynnast fyrirtækinu á bak við vörumerkið. Þess vegna leggjum við okkur fram við að skilja hvað hvert fyrirtæki stendur fyrir, hverjum það vill ná til og hvaða árangri það vill ná.
Við sköpum efni sem vinnur fyrir fyrirtækið.
Hafðu samband
Ertu með verkefni í huga eða langar að vita meira um þjónustuna okkar? Sendu okkur línu og við höfum samband.